Sunday, March 9, 2008

Nýtt félag!

Já maður lætur nú ekki deigan síga í blogginu og félagsstarfinu kæru vinir. Þegar maður er rekin úr einu félagi þá bara stofnar maður annað :O)
Í gærkvöldi kom til mín fyrrverandi piparjúnka og þar sem við vorum báðar reknar úr júnkufélaginu þá ákváðum við að stofna annað félag til að vera í : Fjarmásarafélagið. Rannveig á ástmann í Reykjavíkinni og ég líka svo okkur fannst þetta viðeigandi nafn. Másarafélaginu barst vísa með hamingjuósk í nótt

Ein hún sat og aflaga,
ung og gröð og rík,
fjarmásarafélaga
fann í Reykjavík.

Veit ekki alveg með þetta aflaga....Þetta er nátt ort til Rannveigar en ekki mín eins og allir sjá hihihihihihhiihi

Fyrirhugarður er fundur á næstunni þar sem verður farið yfir eftirfarandi:
Símamás, hópmás, másað í einrúmi og fleira skemmtilegt :O)

1 comments:

Einario said...

Ég er svona temmilega öruggur um að ég sé fyrstur að commenta hérna. Þannig að ég ætla að byrja á því að óska sjálfum mér til hamingju. Þakka þér kærlega fyrir það..

Allavega þetta lítur mjög vel út hjá þér þannig að ég bíð spenntur eftir fleiri "bloggum" frá þér...

Kv. Einario Gonzales