Ég er búin að ákveða að starta nýju trendi á msninu. Ég var búin að nota msnið lengi þegar mér var sagt hvað Lol þýddi og eitthvað annað, já; brb. Mér fannst þetta asnalegt og ég vil koma af stað skammstöfunum á Íslensku á msninu, varðveitum Íslenska tungu. Rífandi kátína er t.d. skammstafað Rk, er ekki tilvalið að nota þetta á msninu þegar maður þarf að lýsa mikilli gleði????
Það finnst mér, Rk er gott!!!
Það er búið að semja dægurlagatexta um formann másarafélagsins, Hreinn Halldórsson sendi mér þennan texta sem hann vill láta syngja við lagið "Syngjandi sæll og glaður"
Másandi meyjan glaða
er mögnuð og nokkuð hýr.
Hún sækir í seggi vel hraða
og sjaldan af hólmi flýr.
Sem formaður másara hefur hún
af hógværð við seggina fengist,
og sagt þeim að best sé að vera brún
og bjartsýn þá dagurinn lengist.
Svo nú verður aldeilis hægt að taka lagið á fundinum þegar hann verður haldin.
Ble...
Tuesday, March 11, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Herdís Perdís. Ekki hætta að blogga. Ég var að fatta að þú værir enn að blogga. Endilega bloggaðu og ég mun kíkja og kommenta.
Kveðja frá hafnarfirðinum fagra.
Sigga systir
(Elísabetu)
Post a Comment